trilltur lýður
Held að við höfum verið 25 saman á gamlárskvöld. Rosalega rólegt og afslappað svona framanaf en svo breyttist þetta i hálfgert álftagerðisbræðra party eins og á afmælinu í Hveragerði í fyrra. NEMA í þetta skipti var dregin fram platan pottþétt party frá áttatíu og eitthvað.. sem var látin rúlla á meðan lýðurinn trilltist á tilbúna dansgólfinu :) Var engan vegin að nenna að fara eitthvað á tjútt.. það er bara ves að koma sér á milli á þessu kvöldi. Planið var reyndar líka að vera heima á nýársdag en endaði í óvæntu matarboði hjá sessu og bára.. og sessa lánaði mér svo rosalega mikin dundur pæju kjól að ég gat bara ekki setið á mér!!!! Skellti mér í strákaparty og endaði á nýársfagnaði með Stuðmönnum. Held reyndar að eg hafi ekki dansað eitt einasta lag... mikið að gera í spjallinnu allt kvöldið... þetta var fín skemmtun.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home